Færsluflokkur: Ferðalög

Ódýrari lyf - fleiri kaupendur - meiri neysla.

Lyfjarisarnir eiga það sammerkt að vera með mörg andlit.

Ef almenningur hætti að taka inn t.d. allt prósakkið og önnur „geðlyf“, þá hugsanlega sæi hann hin réttu andlit Risanna :)

Psychotropic Drugs: The Hidden Danger 

IHealthTube.com

 


mbl.is Ódýr lyf handa fátækum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krefst upplýsinga um allar grillveislur sjálfstæðismanna síðustu 18 ár.

-Það er mat mitt að skylda forsætisráðuneytisins til að afhenda þess gögn sé ótvíræð og vísa ég í því sambandi til 3. gr. laga nr. 50/1996. Tel ég að undanþáguákvæði 4. – 6. gr. laganna eigi ekki við og vísa ég þar sérstaklega til 2. tl. 6. gr. Þar er að finna undanþágu frá upplýsingaskyldu stjórnvalda vegna samskipta við önnur ríki eða alþjóðastofnanir en jafnframt kemur fram í greininni að einungis sé heimilt að takmarka aðgang að gögnum þegar mikilvægir almannahagsmunir krefjist-...

segir Birgir Ármannsson og tek ég undir þessa beiðni hans.

Í ljósi þess hamfaraástands, sem þjóðin upplifir þessa mánuðina, þá krefst hún upplýsinga um eftirfarandi atriði:

Hverjir eru grillmeistarar Sjálfstæðisflokksins?

Hvaða afurð hefur helst verið grilluð síðustu 18 ár?

Hvaða uppíkveikjulögur var notaður?

Síðast en ekki síst, voru boðflennur í þessum veislum eða sátu sjálfstæðismenn einir að krásunum?

beefandbird_l.jpg

 

 


mbl.is Krefur forsætisráðuneytið um upplýsingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með Milestone

hvers líf hangir á bláþræði, samkv. þessari frétt á Rúv. í gær.

Hefur mbl.is hugsað sér að eyða smá púðri í þessa eldfimu frétt?

milestone-sub-5.jpg

 

 

 

Logoið minnir óþægilega á blað úr brotablaðshníf...

 


mbl.is Álandseyingar kaupa Kaupþing í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samsæriskenning dauðans...

Stundum er nauðsynlegt að yfirgefa hrollkaldan óraunveruleikann og leita á náðir safaríkra samsæriskenninga.

Sú besta, sem hef rekist á í dag, snýst um þá áætlun Obama & Co. að afhenda "The New World Order" hin gjaldþrota Bandaríki Norður-Ameríku með undirritun $787 milljarða „björgunarpakkans“ n.k. þriðjudag.  Gjörningurinn fer ekki fram í Washington, einsog til stóð, heldur í Denver, Colorado af öllum stöðum, en það er allt saman skýrt betur út HÉR.

Ef sannleikurinn gerir menn frjálsa, gerir þá hálf-sannleikurinn menn hálf-frjálsa?

sky_i_stuttbuxum.jpg


mbl.is Umbætur á fjármálakerfi brýnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þagað um málið í fréttum Ríkissjónvarpsins.

Is it true?

Já, það var EKKERT fjallað um „stórbrunann og óeirðirnar“ í kvöldfréttatíma Ríkissjónvarpsins.

Hins vegar fór drjúgur tími í „umfjöllun“ á dópi fólksins, Júróvisjón.

Datt mér þá þetta í hug og fletti upp.

“When the people fear their government, there is tyranny; when the government fears the people, there is liberty.” - Thomas Jefferson

(Myndin fyrir neðan er tekin um miðjan dag í dag við Reykjavíkurtjörn)

vi_tjornina.jpg


mbl.is Bál kveikt á Lækjartorgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Far vel, forystufé.

Hafðu þökk fyrir þjónustu við Flokkinn og Auðvaldið.

Hafðu þökk fyrir einkavinavæðingu bankanna.

Hafðu þökk fyrir ALLT & EKKERT.

Megi þjónkun þín vera ávísun á hlýjan bás innan Kerfisins, þess Kerfis, sem brauðfæddi þig og þú saugst af svo mikilli áfergju...

rdin602l.jpg


mbl.is Valgerður ekki í framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að rækta garðinn sinn (ég á engan)...

2_baekur.jpgÍ miðri vikunni ranglaði ég inní bókabúð Máls & Menningar.  Þar er, einsog svo víða, útsala í gangi.  Þar sá ég bækur Hildar Hákonardóttur, Blálandsdrottninguna og Ætigarðinn og skellti  mér á báðar.

Eftir að hafa gluggað í bækurnar verður sú hugsun áleitnari, hvers vegna við Íslendingar eru ekki mun stórtækari í alls konar ræktun með allt okkar heita vatn, landrými og þekkingu.

Mér er t.d. óskiljanlegt, að gróðurhús  skuli ekki vera í hverjum garði Reykjavíkur, þar sem notast má við heita afallsvatnið húsanna.  Stórir garðar fjölbýlishúsa nýtast nánast ekki til neins og auðvitað ættu húsfélög að sjá sér hag í því að vera með sameiginleg gróðurhús. 

Í öllu fjölmiðlafárinu undanfarna mánuði er stundum gott að kíkja í Bændablaðið á netinu og ná smá jarðtengingu.  Og viti menn, í nýjasta tölublaðinu frá 12.2. bls. 12, er einmitt viðtal við Hildi Hákonardóttur.

 

 


Seinkun á fréttaflutningi mbl.is...

Þeir eru stundum alveg úti í móa með sinn fréttaflutning þarna uppi í Hádegismóum...

2551250356_4262042e3f.jpg


mbl.is Seinkun á flugi til Lundúna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar er nú laganna langi al-armur?


mbl.is Panama-svikamylla starfrækt á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Með NEI í farteskinu...

Grein Naomi Klein frá 4.2.´09.  Birt í dag á NEI-inu undir heitinu - Allir víki! -.

abc.jpg


mbl.is Tvö hænufet og tvíhöfða þurs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband