Færsluflokkur: Ferðalög
18.3.2009 | 20:20
Má þjóðnýta atvinnutækin?
Mér finnst einsog ég hafi einhvern tíma heyrt um svoleiðis gjörning.
Minnir, að það hafi verið kallað bylting eða e-ð í þá áttina. Hljómaði nokkuð vel.
Annars er ég bara ánægður með litla mitt, atvinnulaus, vitlaus og undirgefinn.
![]() |
Hreinlega siðlaust |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.3.2009 | 17:28
Þokan í Firðinum...
Tók þessar myndir áðan á leið minni heim. Ég kann vel við svona súldarþoku og hitastigið, sem mælirinn minn sýnir, að séu heilar 8°.
Vonandi léttir samt þokunni fyrir árslok 2010 og fari þar í einu og öllu eftir tilmælum AGS. :)
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.3.2009 | 10:02
Leikvangur fjölmiðla...
Áhugi fjölmiðla, hér heima og erlendis, á þessu hroðalega máli hefur í mínum huga verið nánast sjúklegur.
Sjálfur hef ég veigrað mér við að lesa lýsingar fjölmiðla, þar sem farið er útí smæstu smáatriðin og ekki hefur verið hörgull á þeim lýsingum.
Mál sem þetta virðist einhverra hluta vegna vera kærkomið fyrir fjölmiðla, það eykur sölu og auglýsingatekjur og síðast en ekki síst, dregur athygli almennings frá því, sem skiftir máli.
Myndin fyrir neðan af síðu Guardian í gær lýsir firringunni á nokkuð sláandi hátt...
![]() |
Fritzl játar sekt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 10:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2009 | 22:23
TRYgGINg ´n´Toxic...
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2009 | 21:31
Ný mynd af spínatinu.
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2009 | 13:35
Kalt stríð og Global Warming...
Ég er hættur að taka mark á þessum sjónhverfingum Brúðumeistaranna.
Trilljónum dollara er árlega eytt í vopnakaup og stríðsrekstur á okkar bláa hnetti, sem er að kikna undan álaginu sem og ábúendur hans.
En hvað eru trilljón dollarar milli vina? Hverju er kostað í sjónhverfinguna?
![]() |
Nýtt kalt stríð í uppsiglingu? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 13:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.3.2009 | 10:20
Ólán Íslands.
Þau eru óþolandi hin stóru EF, hvort sem er hjá heili þjóð eða einstaklingum.
Maður, sem fer í læknisskoðun í okóberbyrjun, getur ekki verið ánægður tæpum sex mánuðum seinna, að hafa ekki fengið neinar niðurstöður úr rannsóknum frá heilbrigðisyfirvöldum.
Tíminn læknar nefninlega ekki öll sár; fái ígerð að grassera þarf oftar en ekki aflimun.
Þjóðarlíkaminn er helsærður og ef fer sem horfir, þá má slá hann af með haustinu...
![]() |
Lán til Tchenguiz mögulega brot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2009 | 13:00
IMF/AGS dregur lappirnar
og hver vegna? Það vantar upplýsingar.
Merkilegt, að á þessum upplýstu tímum, sem við lifum á, þá reynist æ erfiðara að nálgast réttu upplýsingarnar. Er e-ð auðveldara að fela þær í rafrænum heimi?
![]() |
Spá stýrivaxtalækkun á fimmtudag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2009 | 10:29
Atvinnuhugmynd.
Í Grímsnesi og nágrenni eru hundruðir sumarhúsa, sem flest hver eru í besta falli nýtt um helgar yfir vetrartímann. Því er auðvelt fyrir grímuklædda menn að athafna sig í rólegheitum í skógivöxnu Grímsnesinu og fylla sendibíla af flatskjám og frystikistum.
Nú ættu nokkrir vaskir, atvinnulausir menn að taka sig saman og stofna með sér öryggisgæslu, sem staðsett væri í húsi í Grímsnesinu. Kjarni hópsins gæti samanstaðið af 8-10 mönnum og væru 4 menn á 2 vel útbúnum bílum á stöðugri yfirferð um svæðið.
Tryggingafélög og félag sumarbústaðaeigenda hljóta að sjá hag sínum borgið með aðkomu að og fjármögnun slíkrar öryggisgæslu.
![]() |
Tvö innbrot í Grímsnesi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)