Færsluflokkur: Ferðalög

6000 manns við kjötkatlana...

Um tvö prósent þjóðarinnar sitja að kjötkötlum þessarar þjóðar og verja sitt og sína með kjafti og klóm.

Þannig var það, þannig er það og mun alltaf verða nema...

veldur_hver_a_heldur.jpg


mbl.is Vextir lána til VBS og Saga tvö prósent
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brotni kúpullinn.

brotni_kupullinn.jpg  Í dag átti ég erindi til Reykjavíkur.  Sonur vinar míns fékk sér haglabyssu fyrir 5-6 árum, fór á eitt gæsaskytterí með félögunum og missti svo áhugann og ákvað fyrir stuttu að selja byssuna.  Byssan er geymd hjá vini mínum svo ég fór heim til hans að líta á byssuna með kaup í huga.  Er ég handlék gripinn, þá vildi svo óhönduglega til, að ég rak byssuhlaupið í ljósakúpul á forláta, fimmarma ljósakrónu með þeim afleiðingum að hann brotnaði. Það þyrmdi yfir mig og vin minn, sem stóð álengdar, hvítur sem nár.  Hann og kona hans höfðu nýlega sett upp ljósakrónuna, sem hafði upphaflega verið í eigu ömmu hennar.  Nú voru góð ráð dýr.  Í huga mínum var ég kominn til Kaupmannahafnar að þræða forngripaverslanir og eftir nokkrar mjög langar mínúntur sagði ég við vin minn: „Ég bjarga þessu, hvað sem það kostar“.

Við ákváðum að segja konu hans ekki alveg strax frá atvikinu og er ég kom út undir bert loft, þá ákvað ég að tala við hana Önnu í Fríðu frænku.  Hjá henni fæst bókstaflega allt milli himins og jarðar og er þangað kom, þá hafði hún brugðið sér frá og var ekki væntanleg fyrr en eftir hálftíma.  Ég ákvað að ganga um Grjótaþorpið og dreifa huganum; ég vissi svo sem vel, að líkurnar á að finna einn alveg eins kúpul og þann, sem ég hafði brotið, voru hverfandi.  Er ég sneri aftur í búðina, allur með hugann í Köben, þá var Anna nýkomin og ég bar upp erindi mitt.  Frekar var brúnin þung á Önnu en niður í kjallara fórum við og út úr afgömlum skáp einum dró hún fram nokkra rykfallna ljósakúpla.  Einn þeirra sýndist mér vera eins og sá er brotnaði og fékk ég að skjótast með hann til vinar míns.  Það var einsog við manninn mælt, kúpullinn var nákvæmlega eins og sjaldan á ævinni hefur mér liðið eins vel.  Þvílíkur léttir og þvílík hamingja.

Ég þarf ekki að orðlengja um byssukaupin.  Það varð ekkert af þeim. 

 

 


Tíu árum seinna...

XL Report: Serbia: ten years on


mbl.is Deilt um NATO í Strassborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í gær stóð einn mótmælandi

fyrir framn Alþingishúsið með pott og sleif og spjald fest á staur við hlið hans.
Hvað er með þessa þjóð? Ætlar hún að leggjast í dvala um sama leyti og lóan kemur, sú sama lóa og segir að nú skal vaka og nú skal vinna?
( Var ekki með myndavélina :(
mbl.is Samdi um 26 milljarða lán og vill kaupa Netbankann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Súrmjólk í hádeginu og sherrystaup á kvöldin...

Samkv. læknisráði fá margar lísfleiðar, eldri dömur, sér sherry á kvöldin fyrir svefninn.

Hampjurtin er fyrir margar sakir merkileg jurt og saga hennar er samofin sögu mannsins...

GoogleVideo - Magic Weed - History of Marijuana.  Dæmi svo hver fyrir sig.

magicweed.jpg

 


mbl.is Kæmi til greina að leyfa kannabislyf á undanþágu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndir og þúsund orðin...

Er ég var að kíkja áðan á NYTimes-vefinn, þá sá ég grein um nýlátinn ljósmyndara, Gianni Giansanti, sem einna þekktastur var fyrir ljósmyndir sínar af Jóhannesi Páli II páfa.  Gianni þessi lést úr beinkrabbameini, aðeins 52 ára gamall.  Mynd með greininni vakti athygli mína, því í dag hjálpaði ég til við flutninga austur í Úthlíð og áður en bíllinn var affermdur, þá tók ég mynd.

Er ég bar þessar tvær myndir saman, þá varð mér ljóst hvað augnablik geta verið sérstök.

22giansanti2_650.jpgpro-masters.jpg

 


Af verkunum verða menn dæmdir.

Ætlar einhver að efast um það?


mbl.is Ísraelar frömdu voðaverk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jarðskjálfti, 7.9 á Richter í Kyrrahafi.

Fyrir rúmum hálftíma skók þessi öflugi skjálfti svokallað Tonga-svæði

Kannski ekki skrýtið, því þar er nýhafið mjög myndarlegt neðansjávareldgos.

Frétt frá því fyrr í dag á mbl.is HÉR.

xin_29203061920418121008324.jpg


staður og stund...

Pósthússtræti fyrir korteri síðan.  Þetta er hvorki staður né stund til að leggja forsetabíl nr.1...

segir stöðumælavörðurinn.

numero_uno.jpg


Kíló / Milljarðar

Ef menn fá 9 ára fangelsi fyrir INNFLUTNING á tæpum 200 kílóum af fíkniefnum, hvað þurfa þá menn, sem stunduðu ÚTFLUTNING  á 200 milljörðum, að sitja mörg ár í fangelsi?

global_import_export_logo_with_clear_back_gorund.jpg

 


mbl.is Þorsteinn fékk níu ára dóm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband