Næst á dagskrá...

Samkv. auglýstri dagskrá RÚV. verður í kvöld í sjónvarpi allra landsmanna sýndur seinni hluti franskrar heimildamyndar, sem ber nafnið -Uppgangur mannsins-.  Þessi þáttur er sýndur á sama tíma og opinn borgarfundur fer fram í Háskólabíói.  Efni fundarins er íslenskt atvinnulíf í aðdraganda kreppunnar, spurt er hvað fór úrskeiðis og fjallað verður um hriplekt lagaumhverfi og veikar eftirlitsstofnanir.

Eftir „uppgang mannsins“ mun RÚV sýna amerískan velling, sem ber nafnið -Sporlaust- og þar á eftir kemur splunkunýr, amerískur vellingur, ER (1-19), sem íslensk þjóð þekkir sem  „Bráðavaktina“ og hugsanlega verður þessi nýja þáttaröð í boði SALT Investment, hver veit.  Svo er auðvitað dagskránni slúttað með endursýndu Skaupi og Kastljósi.

Í mínum huga er RÚV ekki alveg að skilja hlutverk sitt þessar vikurnar og spurning, hvort þjóðin verði ekki að mæta uppí Efstaleiti og fá beinan aðgang að þessari eign sinni og út- og sjónvarpa SÍNUM óskum og SÍNUM veruleika...

Hálft prik fyrir RÚV...

ruv.jpg


mbl.is Borgarafundur í Háskólabíói í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

2 Smámynd: Sylvía

ameríski heilaþvotturinn má ekki víkja...

Sylvía , 12.1.2009 kl. 13:22

3 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

„Fundurinn verður tekinn upp og sýndur í Sjónvarpinu með íslenskum texta að loknum seinni fréttum á miðvikudagskvöldið kemur.“ Fréttir RÚV

Emil Hannes Valgeirsson, 12.1.2009 kl. 14:03

4 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Hálft prik fyrir RÚV...

Ásgeir Kristinn Lárusson, 12.1.2009 kl. 14:11

5 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Segðu svo að þú hafir ekki áhrif - að minnsta kosti til hálfs. En við fögnum uppgangi mannsins.

Emil Hannes Valgeirsson, 12.1.2009 kl. 14:28

6 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Ok !  Ég ætlaði einmitt að skrifa pistil um sama málefni en nú þarf ég þess ekki.  Betra seint en aldrei hjá RÚV.

Anna Einarsdóttir, 12.1.2009 kl. 17:39

7 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Hluti frummælenda mun flytja mál sitt á ensku og svo mun hugsanlega mæta á svæðið sjálfur InSane-Claus...mjög skerí.

Því miður verð ég fjarri góðu gamni og alvöru...

Ásgeir Kristinn Lárusson, 12.1.2009 kl. 19:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband