Færsluflokkur: Ferðalög
21.2.2009 | 13:38
Hryssingslegur hrossahlátur...
EINU SINNI ÁTTI ÉG HEST
SVONA LÍKA KLÁRAN
ÞAÐ VAR SEM MÉR ÞÓTTI BEST
AÐ HANN GLEYPTI ALLAN FJÁRANN
![]() |
Afskrifa 1.500 milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.2.2009 | 11:07
Nokkur bananahýði...
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.2.2009 | 09:59
Uppskriftin er einföld
Fyrst búa þeir til vandamálin, í kjölfarið koma þeir með lausnirnar.
Því einsog Volcker gamli segir svo skemmtilega: Því fleiri alþjóðasáttamála sem við höfum, því betra."
![]() |
Jafnvel sérfræðingar eru gáttaðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.2.2009 | 23:09
Hvergi nema á Ísaköldu landi
eru veðurlýsingar- og spár jafn ljóðrænar og raun ber vitni.
-Skafrenningur er á Klettshálsi og á Steingrímsfjarðarheiði-
-Eins eru vegir auðir á Suðausturlandi-
-og lítilsháttar éljagangur er á Norðurlandi-
Hins vegar fýkur oftast ljóðrænan útí veður og vind í daglegu tali fólks.
Þá er annað hvort talað um skítaveður eða hvað veðrið sé æðislegt...
![]() |
Él fyrir norðan - vond spá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.2.2009 | 16:59
staður og stund...
Miðbær Reykjavíkur í dag kl. 16:39. Allt undir kontról - ennþá...
![]() |
Engar breytingar á gengi krónunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.2.2009 | 12:29
Öll vötn falla í Karabíska hafið...
Sir R. Allen Stanford (mikið rétt, sir!), er með tvöfaldan ríkisborgararétt, annars vegar í BNA og hins vegar í eyríkinu Antigua & Barbuda. Þessi maður, sem virðist illa haldinn af svökölluðum Mad-off vírus, er þokkalega byrgur af veraldlegum gæðum og þó hann hafi ekki enn verið ákærður, þá hafa allar eignir hans verið frystar.
Er þetta ekki það, sem okkar ástkæru yfirvöld ætluðu að gera í kjölfar Hrunsins?
![]() |
Eftirlýstur auðkýfingur fundinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.2.2009 | 08:05
Stelpurnar í Samfó...
Var að segja m.a. að hún væri vel tengd inní Samfylkinguna og ætti þar góðar innistæður.
Já, það var gaman í den hjá stelpunum í Kvennalistanum, en nú eru þær allar orðnar miðaldra, vel settar konur og þær ættu kannski að fara að ástunda e-ð annað en saumaklúbbapólitík...
![]() |
Gunnar ekki „í klíkunni“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.2.2009 | 15:26
Ætlar helmingur þjóðarinnar á þing?
Víst er atvinnuleysi grafalvarlegt mál en allt kvak síðustu vikna um framboð ólíklegustu fuglategunda til Alþingis ber vitni um einkennileg eggjahljóð.
Ekki er á bætandi það fuglabjarg, sem við Austuvöll stendur.
Nær væri að steypa undan öllu gerinu í eitt skifti fyrir öll...
![]() |
Tryggvi Þór Herbertsson vill á þing |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
19.2.2009 | 13:32
Byrjum að selja aðgangseyri STRAX!
Tóm-listarhúsið á núverandi byggingarstigi á að verða minnisvarði og safn um Hrunið og ekki leggja krónu meir í ferlíkið nema til að útbúa yfirbyggða safn- og veitingaaðstöðu á efstu hæð.
Notum þessa 13-14 milljarða, sem áætlaðir eru í bygginguna, í e-ð uppbyggilegra, einsog t.d. til að hjálpa þeim fjölskyldum, sem eru að missa sitt húsnæði.
Er kannski einhver að láta sig dreyma um að komast á tónleika með Rolling Stones árið 2016?
![]() |
Tónlistarhúsið fær grænt ljós |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 13:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.2.2009 | 12:18
Ehf. dauðans...
Mörg einkahlutafélög hér á landi voru beinlínis stofnuð með það að markmiði að fara á endanum í þrot.
Frá árinu 1999 til 2005 vann ég í verslun og það var með ólíkindum, hvað menn voru duglegir að taka nótur með kennitölu fyrir öllum andskotanum og þá meina ég ÖLLU.
Þetta vita allir, því stór hluti þjóðarinnar tók og tekur enn þátt í þessu ehf.-rugli.
Íslendingar eru, einsog börnin segja, skattsvikarar dauðans...
BLEKKING ehf.
![]() |
3.500 fyrirtæki stefna í þrot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)