Færsluflokkur: Ferðalög
24.2.2009 | 12:16
Að rækta garðinn sinn (í eldhúsglugganum)...
Um miðja síðustu viku fann ég í einni af mínum fimm skúffum nokkra fræpoka, sem ég keypti í fyrra. Einn þessara poka innihélt spínatfræ og þar sem sól hækkar á lofti, þá ákvað ég að pota nokkrum niður í mold.
Og viti menn, fimm dögum seinna glittir í nokkra spínatkolla!
Þetta er bara kraftaverk, því seint verð ég talinn með græna fingur, en ég er örvhentur, sem kannski hjálpar :)
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.2.2009 | 10:31
Hvenær er nó(g) nó(g)?
Í fréttum Rúv. kl.9 var sagt frá áhyggjum breskra yfirvalda af mótmælum þar í landi á næstu vikum og mánuðum vegna vaxandi atvinnuleysis og erfiðleika í hnignandi efnahagslífi.
Í Bandaríkjunum eru yfirvöld einnig viðbúin vaxandi óróa og samkv. þessu HÉR, sem er vægast sagt í anda 1984 Orwells, þá má búast við miklum tíðindum...
![]() |
70 fyrirtæki gjaldþrota í janúar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.2.2009 | 09:28
Nei, ekki Melabúðin!
Það er oft með ólíkindum, hvað þjófar geta verið smekklausir og gildir þá einu, hvort þeir ræna heilt þjóðfélag eða félagsmiðstöð einsog Melabúðina.
Það má líka segja, að SÁÁ taki oft við þessum mönnum á þeirra endastöð, þegar allt andlegt og veraldlegt góss er á þrotum...
![]() |
Brotist inn í Melabúðina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.2.2009 | 21:45
Hercule Poirot leysir málið!
Þegar allt virðist vera fara andskotans til, þá er bráðnauðsynlegt að sökkva sér í hyldýpi afþreyingarinnar og fátt er betra í þeim efnum en hinar klassísku morðgátur Agöthu Christie.
Fyrir viku síðan rakst ég á YouTube-síðuna PoirotFilms og þar er að finna heilan helling af frábærum morðgátum, sem allar eru leystar farsællega af hinum eina og sanna Hercule Poirot.
Og hvers vegna ekki byrja strax eftir jarðarförina?
![]() |
Lausn ekki fundin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.2.2009 | 16:42
Er Jóhanna örk eða smábátur?
Hún er allavega með fullgilt haffærniskírteini, en hvað er svona smábátur einsog fimm-mínútna-formaðurinn, Höskuldur Þórhallsson, að þvælast fyrir?
Á ekki að setja hann ásamt fleirum í úreldingu?
![]() |
Framsókn skekur ríkisstjórnina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.2.2009 | 12:56
Er Framsókn besta vörnin?
Af hverju finnst mér einsog Framsókn & Sjálfstæðisflokkurinn muni mynda ríkisstjórn eftir kosningarnar í vor?
SMUGAN: -Misjafn stuðningur við persónukjör-.
![]() |
Vilja fresta seðlabankaumræðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.2.2009 | 11:17
Misvísindi...
Hvers vegna er ekki verið að spyrja réttu spurninganna?
Hvers vegna eru plánetur sólkerfis okkar að hitna?
Skyldi það vera hlýnandi Jörðin sjálf, sem bræðir jökla og veldur hlýnun heimshafanna?
Kannski ættum við að spyrja blessaða Sólina, sem elskar allt...og hlífir?
![]() |
Rannsaka alheimsógn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.2.2009 | 08:59
Viltu afskrifa milljarð?
Hvernig ætli skilanefndir bankanna standi að öllum þessum afskriftum?
Boða þær skjólstæðinga sína til skrifta í þar til gerðum skriftarstólum?
Og að afskriftum loknum, er þá farið með nokkra Davíðssálma?
![]() |
Viltu vinna milljarð? sigraði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 10:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.2.2009 | 21:38
365 Cossar á Bossann...
Spurningin er bara: Hver er Bossinn?
![]() |
Cosser ræðir við Fréttablaðsmenn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.2.2009 | 15:06
Flokkadráttur lána...
Þjóðnýtum íbúðarhúsnæði næstu þúsund ár!
Fólk borgi 20% af nettó tekjum í leigu!
Berum flokkakerfið á torg og brennum það til kaldra kola!
![]() |
Vilja að lánstími verði tvöfaldaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)