Færsluflokkur: Ferðalög
3.3.2009 | 18:44
Smástirnið 2009 DD45 fór hjá í gær.
Fjölmiðlar eru svo uppteknir af því að halda vöku fyrir fólki með fréttum af ástandinu, að smástirni einsog það, sem fór ansi nærri Jörðu í gær, fær nánast enga athygli.
![]() |
Missa svefn vegna ástandsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 19:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.3.2009 | 07:49
Frábært að lesa svona frétt í upphafi dags.
Annars eru þessar 05:30 fréttir mbl.is, gjarnan af fjársukki landans, merkilegt fyrirbæri. Þær einhvern veginn líða hljóðlaust hjá í skjóli nætur.
Og svo sjá menn ekki ástæðu til að birta enn eina fimmþúsundkalla-myndina með fréttinni, en Eyjan.is bætir úr því, þ.e. hún birtir mynd af fjarskyldri frænku sinni, Tortola, hvar pálmatré vaxa og seglskútur kljúfa hafflötinn...
![]() |
Upplýst um skattaskjólin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2009 | 17:21
Bókasótt.
B Æ K U R
Æ K U R B
K U R B Æ
U R B Æ K
R B Æ K U
![]() |
Reyfarakaup á bókamarkaði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2009 | 12:29
Kom við í Blómavali í gær
og keypti nokkur fræbréf. Veit ekki alveg afhverju, því engan á ég jarðskikann.
Og þá er það tengingin við þessa frétt. Hver er hún? Jú, hún er sú, að mér líður einsog Unga tunga í ævintýrinu og mér finnst himinninn vera við það að hrynja. Þess vegna leið mér betur með nokkur fræbréf í vasanum og líka þá staðreynd, að í einu bréfi eru allt að tvö þúsund gulrótarfræ...
![]() |
62 milljarða dala tap |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 12:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.3.2009 | 11:08
Þetta efni er svo eldfimt
að ég treysti mér ekki til að fjalla um það á þessum vettvangi.
Vil bara nefna, að í æsku voru uppáhaldssöngkonur mínar þær Helena Eyjólfs og Svanhildur Jakobs.
Á laugardaginn sá ég Helenu á sviði í Iðnó syngja -Hvítir mávar- og nú áðan var Svanhildur að spila gömul, norsk dægurlög á Rúv.
Ísland hefur lítið breyst á undanförnum áratugum og mitt litla barnshjarta veit ekki, hvort það eigi að gráta eða hlægja...
![]() |
Óhamingja í æsku tengd veikindum á fullorðinsárum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.2.2009 | 12:48
Það var meinið...
300 þúsund manna þjóð hefur um nokkuð langt skeið stundað það að selja hvert öðru sælgæti. Hjá flestum hefur þetta verið hálfgert nóa-kropp, en hluti þjóðarinnar hefur verið á kafi í Makkintoss-dollunum og er úttroðið eftir atganginn.
Og Quality-Street liðið vill bara meira og meira...
![]() |
Ingibjörg býður sig fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.2.2009 | 12:01
Tilgangur lífsins...
Lífið er flókið og fullt af leyndardómum og best er að vita sem allra minnst um tilgang alls.
Samt verð ég að viðurkenna, að þetta með hænuna og eggið heldur stundum fyrir mér vöku.
![]() |
Leyndardómar naflalónnar leystir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.2.2009 | 10:47
„Þögn“ fjölmiðla um Alþjóða gjaldeyrissjóðinn
og aðkomu hans hér á landi er einkennileg, einsog það sé eitthvert þegjandi samkomulag í gangi að vera helst ekki að upplýsa fólk þessa lands um t.d. skilyrði sjóðsins fyrir lánum hans hingað.
Í viðtali við Mark Flanagan á vef IMF frá 24.2. segir hann m.a. þetta um atvinnuleysið og fólksflóttann:
IMF Survey online: How much do you think migration will hurt economic recovery?
Flanagan: Outmigration may be an issue in the short term. If it does, there could be some impact on future growth. But the consequences are not all negative. For instance, migration may be accompanied by remittances, which would help lessen the pressures on Icelands economy. It may even help contain the rise in unemployment, and the fiscal cost of the crisis.
In the longer term, I am convinced Iceland will remain a very attractive and rich society, with a vibrant economy.
Það er einnig merkilegt í þessu viðtali, að hr. Flanagan talar eingöngu um fisk- og álútflutning, en minnist ekki einu orði á ferðamannaiðnaðinn. Skrýtið.
Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn er EKKI góðgerðastofnun. Hann setur ströng skilyrði. Við hljótum einnig að setja það sem skilyrði, að stjórnvöld og fjölmiðlar upplýsi almenning um ALLT er varðar þessi mál.
Verum í bandi...
![]() |
Hægir á vexti atvinnuleysis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.2.2009 | 15:04
Ekki gott...
Eftilvill munu bankakerfi heimsins taka sér frí, er nær dregur páskum.
Minni aftur á viðtal við George Green frá 24.2. HÉR.
![]() |
Mikill samdráttur í Bandaríkjunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 21:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)