Færsluflokkur: Ferðalög

Leyndin lengi lifi, hún lifi, húrra, húrra, húrrrraaa!!!

Tek undir orð Púkans.

Ísland siglir hægt, en örugglega, aftur til miðalda.  

Verður þjóðin boðin upp í Algeirsborg innan tíðar?

algeirsborg.jpg


mbl.is Einu skrefi nær Kaupþingssölu í Lúxemborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

47 millj. Bandaríkjamanna án sjúkratrygginga.

Efnahagur BNA er í gjörgæslu og batalíkur eru litlar.


mbl.is Krefst endurbóta á heilbrigðiskerfinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frumvarp til laga

um heimild til samninga um álver í Helguvík.

(Lagt fyrir Alþingi á 136. löggjafarþingi 2008–2009.)

Svei mér þá, ef þessi „samningur“ er ekki umfangsmeiri lesning en stjórnarskrá lýðveldisins.

Svei mér þá, ef íslensk þjóð er ekki heillum horfin.

gamla_island.jpg

 


mbl.is Hagvöxtur var 0,3% í fyrra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

staður og stund...

Eldhúsglugginn heima nú áðan.  Forsagan er HÉR.

sp-5.jpg


Haka við þessa 05:30 frétt

bara svo hún glatist mér ekki.
Eyði henni, þegar rofar til í rústunum...

theatreruin.jpg


mbl.is Tvísýnt um sölu Kaupþings í Lúxemborg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Galdurinn farinn...

Er ég var fimm ára, þá sá ég álfa.  Ég bjó austur á Rangárvöllum og þennan fagra haustmorgun var ég að leik með bróður mínum og félaga okkar úti í þýfðum haga, er skyndilega birtust okkur verur milli þúfna.  Verur þessar voru lágvaxnar, 4-5 sentimetrar á hæð, klæddar móbrúnum fötum og einnig sáum við tvo bíla aka þarna löturhægt milli þúfnanna og minntu þeir á gamla Ford.  Í minningunni gerðist þetta þannig, að það var sem hulu væri skyndilega svipt af öðrum heimi, einhverjar hliðardyr opnuðust að veröld, sem flestum er hulin og ekki er ætlað að sjá.  Við félagarnir hlupum skelfdir heim að bæ, en um leið spenntir að segja fullorðna fólkinu frá þessum stórmerku tíðindum.  Fólk brosti góðlátlega, klappaði okkur á kollinn og talinu var eytt yfir mjólkurglasi og tvíbökum.

Í þeim heimi, sem við hrærumst í, er ekki tími eða rými fyrir „yfirnáttúrulega“ hluti, töfra lands og náttúru.  Fólk er dáleitt af sýn á efnislegar þarfir, tilbúinn „veruleika“, sem leiðir aðeins til andlegs dauða.

Barnið í mér er þarna einhvers staðar langt, langt inni, en galdurinn er farinn...

ofugar_raetur.jpg

 


mbl.is Nornabúðin lokar dyrum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dimmblá í Valhöll.

Sjálfsagt veitir ekki af einni Dimmblárri (Deep Blue) fyrir valdataflið, sem framundan er í Valhöll.

En einsog svart er hvítt og hvítt er svart, þá er bara einn takki í stöðunni: DELETE.

cb043694_805854.jpg


mbl.is Fá að senda einn tölvupóst frá Valhöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

- Black Sunshine -

Höfuðáttirnar fjórar

eru þrjár,

norður og suður.

(þessi vísa, sem ég man ekki hver hnoðaði saman, er aldrei of oft kveðin) 


mbl.is Afskrifuðu ekki tap
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað getur maður sagt?

Á sama degi og Borgarahreyfingin mætir á sviðið í Iðnó, þá lenda fjórar F-16 vélar á Keflavíkurflugvelli og meðfylgjandi 50 danskir hermenn „til að sinna loftrýmiseftirliti“ fyrir gjaldþrota þjóð.

Er það ekki frétt?

islenskt_loftrymi.jpg


mbl.is Ísland líkist fyrrum Afríkunýlendum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rauðglóandi símar og grænt skyr...

Á kynningarfundi orkufyrirtækja í HÍ í morgun var slett grænni skyrsúpu á kynningarfulltrúa.

Er það ekki frétt?

rautt_graent.jpg

 


mbl.is Þúsundum vísað úr HÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband