Og klukkan sló tólf...


Það var meinið...

300 þúsund manna þjóð hefur um nokkuð langt skeið stundað það að selja hvert öðru sælgæti.  Hjá flestum hefur þetta verið hálfgert nóa-kropp, en hluti þjóðarinnar hefur verið á kafi í Makkintoss-dollunum og er úttroðið eftir atganginn. 

Og Quality-Street liðið vill bara meira og meira...

qsuxfif.jpg

 

 


mbl.is Ingibjörg býður sig fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilgangur lífsins...

Lífið er flókið og fullt af leyndardómum og best er að vita sem allra minnst um tilgang alls.

Samt verð ég að viðurkenna, að þetta með hænuna og eggið heldur stundum fyrir mér vöku.


mbl.is Leyndardómar naflalónnar leystir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

„Þögn“ fjölmiðla um Alþjóða gjaldeyrissjóðinn

og aðkomu hans hér á landi er einkennileg, einsog það sé eitthvert „þegjandi samkomulag“ í gangi að vera helst ekki að upplýsa fólk þessa lands um t.d. skilyrði sjóðsins fyrir lánum hans hingað.

Í viðtali við Mark Flanagan á vef IMF frá 24.2. segir hann m.a. þetta um atvinnuleysið og fólksflóttann:

IMF Survey online: How much do you think migration will hurt economic recovery?

Flanagan: Out–migration may be an issue in the short term. If it does, there could be some impact on future growth. But the consequences are not all negative. For instance, migration may be accompanied by remittances, which would help lessen the pressures on Iceland’s economy. It may even help contain the rise in unemployment, and the fiscal cost of the crisis.

In the longer term, I am convinced Iceland will remain a very attractive and rich society, with a vibrant economy.

Það er einnig merkilegt í þessu viðtali, að hr. Flanagan talar eingöngu um fisk- og álútflutning, en minnist ekki einu orði á ferðamannaiðnaðinn.  Skrýtið.

Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn er EKKI góðgerðastofnun.  Hann setur ströng skilyrði.  Við hljótum einnig að setja það sem skilyrði, að stjórnvöld og fjölmiðlar upplýsi almenning um ALLT er varðar þessi mál.

Verum í bandi...

library_-_4680.jpg

 


mbl.is Hægir á vexti atvinnuleysis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki gott...

Eftilvill munu bankakerfi heimsins taka sér „frí“, er nær dregur páskum.

Minni aftur á viðtal við George Green frá 24.2. HÉR.

hp_indu_802212.png

 


mbl.is Mikill samdráttur í Bandaríkjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einstæðingurinn Svein Harald

er samkv. þessu á vefsíðu Seðlabankans maður einsamall.  Ekki er minnst á fjölskyldu, konu og börn.  Margir eru reyndar þannig innréttaðir, að engan hafa þeir tímann fyrir slíkt; það er vinnan, sem gengur fyrir öllu.

Skyldi sveinninn hafa gluggað í þessari bók, meðan beðið var átekta á hótelinu?

lost_in_iceland500.jpg


mbl.is Bankastjórinn beið átekta á hóteli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfram spínat...

Rýkur upp!  Svona leit þetta út í gær.  Næsta mynd eftir viku, ef gvuð lofar...

spinat_27_2.jpg


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband