17.3.2009 | 10:20
Ólán Íslands.
Þau eru óþolandi hin stóru EF, hvort sem er hjá heili þjóð eða einstaklingum.
Maður, sem fer í læknisskoðun í okóberbyrjun, getur ekki verið ánægður tæpum sex mánuðum seinna, að hafa ekki fengið neinar niðurstöður úr rannsóknum frá heilbrigðisyfirvöldum.
Tíminn læknar nefninlega ekki öll sár; fái ígerð að grassera þarf oftar en ekki aflimun.
Þjóðarlíkaminn er helsærður og ef fer sem horfir, þá má slá hann af með haustinu...
Lán til Tchenguiz mögulega brot | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2009 | 13:00
IMF/AGS dregur lappirnar
og hver vegna? Það vantar upplýsingar.
Merkilegt, að á þessum upplýstu tímum, sem við lifum á, þá reynist æ erfiðara að nálgast réttu upplýsingarnar. Er e-ð auðveldara að fela þær í rafrænum heimi?
Spá stýrivaxtalækkun á fimmtudag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2009 | 10:29
Atvinnuhugmynd.
Í Grímsnesi og nágrenni eru hundruðir sumarhúsa, sem flest hver eru í besta falli nýtt um helgar yfir vetrartímann. Því er auðvelt fyrir grímuklædda menn að athafna sig í rólegheitum í skógivöxnu Grímsnesinu og fylla sendibíla af flatskjám og frystikistum.
Nú ættu nokkrir vaskir, atvinnulausir menn að taka sig saman og stofna með sér öryggisgæslu, sem staðsett væri í húsi í Grímsnesinu. Kjarni hópsins gæti samanstaðið af 8-10 mönnum og væru 4 menn á 2 vel útbúnum bílum á stöðugri yfirferð um svæðið.
Tryggingafélög og félag sumarbústaðaeigenda hljóta að sjá hag sínum borgið með aðkomu að og fjármögnun slíkrar öryggisgæslu.
Tvö innbrot í Grímsnesi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.3.2009 | 15:37
Berskjaldaðir ódæðismenn...
Þökk sé Internetinu, það lengi lifi, húrra, húrra, húúrrraaaa!!!
(Vona að tenging mín við þessa frétt sé rétt).
Bandaríkin berskjaldaðri undir Obama | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.3.2009 | 12:24
Fer lyktarskyn almennings batnandi?
Ætla rétt að vona það.
Einnig eru æ fleiri augu að opnast og háværari raddir að heyrast.
Í hinum stafræna heimi fer fram barátta góðs og ills og lítt sýnileg í ofbirtu hversdagsins, brauðstriti daganna en uppgjörið er skammt undan.
Það glittir í dagsbrún...
Illa þefjandi stórgróði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2009 | 14:16
Það á ekki af Áströlum að ganga...
Um daginn voru það hinir gríðalegu skógareldar, nú þetta hörmulega umhverfisslys. Talið er að allt að tíu sinnum meiri olía en upphaflega var áætlað, hafi farið í sjóinn og berst nú uppá strendur Queenslandfylkis.
Olíuslys í í Ástralíu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)