Kom við í Blómavali í gær

og keypti nokkur fræbréf.  Veit ekki alveg afhverju, því engan á ég jarðskikann.

Og þá er það tengingin við þessa frétt.  Hver er hún?  Jú, hún er sú, að mér líður einsog Unga tunga í ævintýrinu og mér finnst himinninn vera við það að hrynja. Þess vegna leið mér betur með nokkur fræbréf í vasanum og líka þá staðreynd, að í einu bréfi eru allt að tvö þúsund gulrótarfræ...

last_roll_-_1_804060.jpg

 


mbl.is 62 milljarða dala tap
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Besta fjárfestingin sem um getur í heiminum í dag. Sjálfsþurftabúskapur er framtíðin! (Þ.e. fyrir þá sem ætla sér að lifa af það sem í vændum er...)

Guðmundur Ásgeirsson, 2.3.2009 kl. 12:45

2 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Ekkert líf án út-sæðis :)

Ásgeir Kristinn Lárusson, 2.3.2009 kl. 12:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband