6.4.2009 | 14:00
Þarfnast þetta fólk ekki hjálpar?
Rúmlega 18.000 manns eru án atvinnu og tugþúsundir skólafólks nú í páskafríi.
Hvernig væri að mæta á Austurvöll og hjálpa þessum þingmönnum okkar að ná áttum?
Ekki getur Jón gamli Sigurðsson staðið einn í þessu, eða hvað?
PS. Keyrði framhjá Alþingishúsinu fyrir korteri og flautaði rösklega...
Þingmenn syngja og dansa darraðardans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ætli þetta fólk geri sér grein fyrir að það er í beinni útsendingu?!!!
Af öllum - þá er Björk Guðjónsdóttir í ræðustól núna, manneskja sem í fyrsta skipti sást eftir að forseti þings þurfti að lýsa eftir þeim úti í bæ.
Jón Magg er kominn lafmóður í ræðustól núna. Mikill er máttur málþófs.
Kolla (IP-tala skráð) 6.4.2009 kl. 18:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.