Ekki bofs frá Hádegismóum, ennþá...

Ég bíð spenntur eftir útskýringum hinna góðu umsjónarmanna blog.is vegna þessarar hógværu orðsendingar, er mér barst frá þeim í gærkveldi.

Ágæti bloggari.

Vegna endurtekinna kvartana hefur verið tekið fyrir að þú getir tengt bloggfærslur við fréttir á mbl.is.

Kveðja,
blog.is

slagur_810768.jpg

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Emil Hannes Valgeirsson

Ekki kvartaði ég. Þessar orðmyndir þínar eru með því skemmtilegasta hér á blogginu.

Emil Hannes Valgeirsson, 13.3.2009 kl. 15:56

2 Smámynd: Hilmar Gunnlaugsson

Þú hefur farið full geyst Ágeir minn. Meðalhófið er best.

Hilmar Gunnlaugsson, 13.3.2009 kl. 16:18

3 Smámynd: Anna Einarsdóttir

Í alvöru !!  Er bannað að hafa skoðanir hérna ?    Af hverju máttu ekki blogga við fréttir ?

Nei, nú finnst mér fokið í flest skjól.  Og það fauk í mig líka. 

Anna Einarsdóttir, 13.3.2009 kl. 17:21

4 Smámynd: Ásgeir Kristinn Lárusson

Sendi blog.is fyrirspurn í morgun. Þessir ágætu herrar hafa enn ekki séð „ástæðu“ til að svara mér, þannig ég veit ekki hver glæpurinn er.

Ásgeir Kristinn Lárusson, 13.3.2009 kl. 19:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband