9.3.2009 | 11:49
Galeiðan Ísland
var þannig hönnuð að svipaði til farþegarýmis í Boeing Dreamliner. Meðan þrælarnir reru ómeðvitaðan lífróður, glápandi á ammerískar hollívúdú-myndir og undir áhrifum freyðandi drykkja, gengu fjarstýrðar flugfreyjur um beina og seldu þrælunum katalóg-glingur.
Eina leiðin fyrir galeiðuþrælana að losna undan blekkingarokinu er að losa öryggisbeltin, rísa úr sætum sínum og henda flugfreyjum fyrir borð, arka svo í stjórnklefann og aðstoða flugstjóra úr sætum sínum.
Þannig getum við saman lent draumnum...
Auknar líkur á þjóðargjaldþroti" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.