22.1.2009 | 09:01
Að snapa fæt...aþíbara
Meðan útrásarvíkingar voru önnum kafnir í sínum ránsferðum og stór hluti þjóðarinnar á neyslufylleríi, þá gleymdist að ala upp heila kynslóð. Þessari kynslóð var klesst fyrir framan tölvuskjái og GSM símum troðið í vitund þeirra og allir dagar voru nammidagar. Þessi krakkaskinn fengu aldrei NEI í veganesti heldur þunnbotna pítsu með innantómri froðu og í andlegri neyð sinni geta þau varla smassað HJÁLP á nýju 3G símana sína...
Veitum þeim áfallahjálp áður en það verður um seinan...
Lögreglumaður enn á sjúkrahúsi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
... góður punktur Ásgeir... það er ýmislegt sem þarf að lækna eftir þessi síðustu ár... en ég hef trú á betra Íslandi eftir þennan hvirfilbyl...
Brattur, 22.1.2009 kl. 21:49
Ég líka - nú þarf bara að „dítoxa“ þjóðarlíkamann almennilega...
Ásgeir Kristinn Lárusson, 23.1.2009 kl. 00:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.