17.1.2009 | 11:04
Átti Adam einnig sjö dætur?
Hverjum þjónar þessi hildarleikur? Í þrjár vikur hafa Ísraelsmenn drepið og limlest þúsundir Palestínumanna, gjöreyðilagt heimili þeirra og skóla, sjúkrahús og aðrar opinberar byggingar. Allt með velþóknun alþjóðasamfélagsins, sem vissi fyrir mörgum mánuðum af fyrirhugaðri aðgerð Ísraelsmanna, -Cast Lead-.
Eftir þrjá daga mun Obama standa frammi fyrir þjóð sinni og heita stuðningi sínum við hana og sverja við sína Biblíu. Það er spurning, hvort hann muni eða hafi nú þegar heitið hollustu sinni við aðrar bókmenntir...
Friðarsinni syrgir dætur sínar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það á að banna þess helv... biblíu enda er þessi ómerkilegi uppfundni pappír undirrótin af flestum stríðum síðustu hundrað ára.
Ég vill ekki gera lítið úr trú manna á jesús og guð ( með litlum stöfum ) en að trúa þessu bulli er jafn vitlaust og að trúa á jólasveininn.
Tobbi Villa (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 11:33
Það er ekkert að Bíblíunni hún stendur fyrir sínu en það er eitthvað að fólki sem notar trú til slíkra verka
DG, 17.1.2009 kl. 12:14
Biblían er bara klósettpappír, það er búið að búa eitthvað til í kringum hana svo að allir geti fundið sig í trúnni. Gott afl og illt afl, iss einhverjar verstu manneskjur sögunnar eru komnar úr kaþólsku kirkjunni. Pintingar og fjöldamorð eru engin nýyrði hjá kristnufólki, það er búið að drepa milljónir manna í nafni trúarinnar.
Tobbi Villa (IP-tala skráð) 17.1.2009 kl. 12:39
Biblían er soldið einsog tvískift símaskráin okkar, fyrri hlutinn og sá umfangsmeiri nær yfir „Stór Reykjavíkursvæðið“, seinni hlutinn nær svo yfir landsbyggðina. Í mínum huga er seinni hlutinn, landsbyggðin, þ.e. Nýja Testamentið, merkilegra, þó svo þýðingar hafi skolast all verulega til í aldanna rás, viljandi eður ei...
Ásgeir Kristinn Lárusson, 17.1.2009 kl. 13:05
Ekkert breytist eftir þriðjudag. Obama er umkringdur stuðningsmönnum Ísrael.
Villi Asgeirsson, 17.1.2009 kl. 14:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.