Færsluflokkur: Ferðalög
31.1.2009 | 11:10
Gamlir rauðlaukar.
Hlúum að grasrótinni og jarðsetjum þessa gömlu lauka þannig, að þeir sjái aldrei framar til sólar...
![]() |
Stjórn mynduð í dag eða á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2009 | 07:55
Bergþórshvoll brennur...
Ég sit hérna nýlega vaknaður og Geir Haarde fer með pólitískar þulur í morgunútvarpiinu.
Svo les maður þessa frétt og dæsir, kveikir í sígaretttu og hugsar:
Ætli allar þessar eiginkonur og mæður útrásarvíkinga séu með hnésítt hár og skyldi minni þeirra vera jafnlangt?
![]() |
Fleiri bankamenn skráðu eignir á ættingja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 08:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.1.2009 | 21:55
Upstairs - Downstairs
Sjálfsagt getur verið töff að vera bara venjuleg, láglaunuð, reykvísk lögga og vitandi það, að inni á Hilton hóteli gangi um teppalagða sali jakkafataklæddar alvörulöggur og með gvuðmávitahvaða vopn í belti sínu...en menn hafa val.
![]() |
Vel heppnuð mótmæli, segja hernaðarandstæðingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2009 | 21:20
staður og stund...
Hilton Nordica (Paris-London-New York-Reykjavík) er svo úr takt við samtímann hvort sem það hýsir Átveislu Svörtulofta eða Grúppíufund NATO...
![]() |
Lögregla beitti piparúða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2009 | 17:09
Einn og hálfur tími í mótmæli...
![]() |
NATO-móttaka flutt á Nordica |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.1.2009 | 12:53
Ljósár og milljarðar...
Seinna í dag ætla ég að skutla móður minni til læknis.
Hún hefur undanfarnar vikur átt erfitt með svefn, er sífellt að vakna upp á nóttunni og nær því ekki að hvílast sem skyldi.
Því ætlar hún til læknis og fá uppáskrifað recept fyrir svefnlyf svo hún geti sofið draumlaust í einni lotu og gleymt öllum þessum stjarnfræðilegu tölum, sem stöðugt dynja á henni og þjóðinni.
![]() |
Skuldir aukast um 400 milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2009 | 11:36
NATO og Global Warming-kjaftæðið...
Á næstu dögum verður haldin ráðstefna í kaupstaðnum Reykjavík á vegum NATO (North Atlantic Treaty Organization), en samtök þessi eru leppar bandarískra heimsvaldasinna, stofnuð í þeim eina tilgangi að verja hagsmuni BNA í Evrópu og þess vegna um víðan völl. Nægir að nefna Írak og Afganistan.
Ný ríkisstjórn á að setja það sem kröfu, að Ísland segi sig úr NATO. Þeirra hagsmunir eru ekki okkar hagsmunir.
Kl. 18:30 í kvöld ætlar NATO og taglhnýtingar þeirra, að efna til veizlu í Þjóðmenningarhúsinu v/ Hverfisgötu.
Mætum á svæðið og mótmælum óværunni NATO og veru okkar í þeirra skjóli og sláum taktinn, takt þjóðarinnar!
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 11:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2009 | 10:23
Kvalræði fortíðar.
Bara svo fólk viti það, þá þarf Nýtt Ísland ekki á þessum veiðum að halda.
Það er morgunljóst, að sjávarútvegsráðherfan er undir hæl Kristjáns Loftssonar og annarlegra afla, sem aldrei munu ná landi, ef heilbrigð skynsemi fær að ráða.
Þá er sorglegt í aðdraganda kosninga, að upplifa enn og aftur nálykt pólitískrar spillingar, ömurlegt að hafa á tilfinningunni, að nákvæmlega ekkert sé að breytast.
Við hljótum að spyrja okkur kvölds og morgna: Hvað þarf til að breyta okkar samfélagi til góðs og að þjóðin geti staðið upprétt með sjálfri sér og meðal siðaðra þjóða?
Verði af þessum veiðum, þá legg ég til, að skilyrt verði, að allur hagnaður renni óskertur til Mæðrastyrksnefndar.
![]() |
Alvarlegt ef ný stjórn bannar hvalveiðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.1.2009 | 20:56
LANDRÁÐ ehf.
Eftir að hafa horft á Kastljósið og umfjöllun þess um gjörninga Kaupþingsmanna þá líður mér eitthvað svo illa í sálinni. Allt er farið svo gjörsamlega til fjandans af völdum nokkura tuga siðlausra glæpamanna og með fullri velþóknun stjórnmála- og embættismanna.
Mikið óskaplega skil ég þá vel, er vilja bylta þessu þjóðfélagi, brenna stofnanir og fangelsa glæpamenn, vegna þess að þannig líður mér þessa dagana.
Og aldrei var gert ráð fyrir neinni framtíð fyrir börn okkar, aldrei voru þau spurð.
![]() |
Atlaga felldi íslenska kerfið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 21:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
26.1.2009 | 23:14
Blóðkreppusótt auðvaldins.
Mannvinurinn Bill Gates (William Henry Gates III) þarf ekkert að vælukjóast. Í byrjun aldar var hann svo séður að fjárfesta feitt í einu stærsta hergagnaframleiðslufyrirtæki heimsins, NNS (Newport News Shipbuilding). Ekki löngu seinna var árásin gerð á Tvíburaturnana og högnuðust sumir vel í framhaldinu
Skyldi Bill hafa dreymt fyrir 9/11 eða fengið SMS með góðum fyrirvara?
(Látið ekki útlitið blekkja ykkur)
![]() |
Gates býst við langri kreppu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 23:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)