3.4.2009 | 20:06
Fljótsprottinn gróði...í boði YouTube.
Fréttir undanfarinna vikna af upptöku lögreglunnar á þúsundum kannabisplantna er með ólíkindum. Það er sem yfirvöld hafi snögglega fengið lyktarskynið en er það svo?
Íslendingar eru gjarnir að fá sömu gróðahugmyndirnar á sama tíma og held ég að það gildi um þessa ræktun einsog svo margt annað þar sem gróðafíknin blindar menn.
Yfir 50 einstaklingar hafa verið handteknir vegna þessara ræktunarmála, sumir góðkunningjar lögreglunnar en aðrir nýir í bransanum. Þá kem ég að því, sem ég ætlaði að benda á og það er, að á YouTube er að finna ógrynni myndbanda um kannabis og sum hver beinlínis hægt að flokka sem kennsluefni í ræktun plöntunnar og spurning hvort sá tími muni renna upp fyrr en síðan, að þessi myndbönd verði fjarlægð af Netinu. En vinnst e-ð við það? Held ekki... (á YouTube HÉR)
180 kannabisplöntur teknar í Sandgerði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 20:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
3.4.2009 | 11:39
Er ekki hægt að fá skýrari mynd af manninum?
Hver er Gunnar Þ. Andersen? Eflaust góður fyrir sinn (ó)pólitíska hatt en er þetta maðurinn, sem ég vildi sjá í þessa stöðu?
Nei, og ég veit að margir eru sama sinnis.
Gunnar Andersen forstjóri FME | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
3.4.2009 | 10:28
Þjóðin vill Vilhjálm Bjarnason
í Fjármálaeftirlitið. Ætla stjórnvöld að virða þann vilja eða hunsa?
Nýr forstjóri fyrir hádegi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.4.2009 | 09:27
Nýr, alþjóðlegur gjaldmiðill
við sjóndeildarhringinn? Jú, það virðist mega lesa milli línanna í samkomulagi því, er samþykkt var í gær á G20 fundinum. Mike (FeverIam) fer yfir málin og rétt að benda á alla linkana, sem hann setur með fréttinni.
Fagnar tímamótasamkomulagi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.4.2009 | 21:26
Táknræn leiðarlok...
Í þessu nýja, tveggja tíma viðtali við Project Camelot fer David Icke yfir stöðuna, þær blekkingar og þann áróður, sem valdhafarnir reka stöðugt, t.d. í gegnum fjölmiðla til að halda almenningi frá því, sem skiftir máli, þ.e. að þekkja sjálfan sig og þann heim, sem við hrærumst í.
Einsog hann sér samhengi hlutanna, þá lifum við á ögurstund og skammur tími til stefnu. En umfram allt, veljum rétt...
Lokin nálgast hjá Leiðarljósi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.4.2009 | 15:25
Skraufþurr gluggapóstur framtíðar...
Það er ansi margt, sem við getum verið án í þessu lífi og þarf ekki að fjölyrða um það.
Vatn er undirstaða lífs á Bláa hnettinum okkar en fer mjög víða þverrandi með ófyrirsjánlegum afleiðingum.
Íslendingar mættu aðeins staldra við og hugsa sín vatnsréttindamál uppá nýtt.
Myndbandið fyrir neðan er fyrri hluti af fréttaskýringu frá AlJazeera. Seinni hluti HÉR.
Þriðjungur breskra barna lifir í fátækt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.4.2009 | 11:17
Gefum eftir Hatton-Rockall svæðið
til Breta í skiftum fyrir Icesave og hættum þessum olíublautu draumum.
Förum svo að taka almennilega til hérna á Skerinu áður en allt sekkur til botns...
Sér fyrir endann á hrunsferli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 11:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)