Tókstu lýsi í morgun?

ljosi_i_myrkrinu.jpg
mbl.is D-vítamín gegn MS-sjúkdómnum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

NEI, NEI, OG AFTUR NEI!!!

Fyrir utan glugga minn fljúga gæsir í austurátt og Tunglið lullar á venjubundinni ferð sinni yfir Íslandi án teljandi vandræða.

Sá sýndarveruleiki, sem NATO & Co. býður uppá, er ekki fyrir Nýja Ísland.  Öryggi þjóðarinnar felst fyrst og fremst í því, að hafna utanaðkomandi „vernd“ og hafa Landið og Himininn fyrir sjálfa sig...

Því segjum við: Ísland úr NATO - blekkinguna burt!

himinninn_yfir_okkur.jpg

 

 


mbl.is Norðurlöndin gæti loftrýmis Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hörmungarnar í Simbabve.

Kólerufaraldurinn í Simbabve er einn sá versti í manna minnum, yfir 60 þús. smitaðir og 3000 látnir, eða álíka margir og fórust í árásinni á Tvíburaturnana. 

Það má líka fullyrða, að þessar hörmungar séu af mannavöldum.  Ringulreiðin og hryllingurinn, sem viðgengist hefur svo lengi í landinu undir stjórn brjálæðingsins Mugabe, er sorgleg og sérstaklega í ljósi afskiftaleysis alþjóðasamfélagsins.

Um daginn, er ég var e-ð að kynna mér hitabeltissjúkdóma s.s. kóleru, þá rakst ég á þetta viðtal hér fyrir neðan við Jim Humble, höfund MMS (Miracle Mineral Supplement).  Það, sem þessi maður hefur fram að færa, er einstakt í baráttunni við þá mörgu sjúkdóma, er hrjá mannkyn. 

Svör við langflestum sjúkdómum er að finna í náttúru Jarðar, plöntum hennar og jarðefnum.  Þetta vita lyfjarisarnir og þeir vita líka, að ekki er hægt að fá einkaleyfi á þessar gjafir Jarðar.  Því berjast þeir hatramlega gegn öllum „skottulækningum“ og verja óheyrilegum fjárhæðum í þann „hernað“.

Ég hvet fólk til að hlusta á viðtalið og kynna sér efni þess.


Hvað getur maður sagt

annað en: Dig, Lazarus, Dig!!!


mbl.is Baugur í greiðslustöðvun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvalræði andlegra öreiga...

Í Reykjavíkurhöfn hvíla nokkrir gamlir gufudallar, smíðaðir um miðja síðustu öld og voru brúkaðir til hvaladrápa á Íslandsmiðum.

Útlendingar, er sjá þessi lúnu fley, halda að þar sé hluti af Sjóminjasafninu staðsettur.

Væri ekki nær að endurreisa skipasmíði á Íslandi og skapa þannig mörg hundruð störf áður en öll sú þekking drabbast niður og í kjölfarið hefja útflutning á hafsins fleyjum?

0997.jpg


mbl.is 200 störf slegin út af borðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessum mönnum er ekki sjálfrátt.

Milljónir, billjónir og trilljónir.

Davíð er kórdrengur við hlið æðstuprestanna hjá Federal Reserve...

en engu að síður í sama sértrúarsöfuðinum.


mbl.is Jóhanna og Davíð ræddu saman
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana.

Steingrímur J., laga þetta strax í dag!

Það þarf ekki að hafa mörg orð um þetta.

Íslendingar verða að vera sjálfbærir í framleiðslu á matvælum og við höfum alla burði til útflutnings á hágæða grænmeti í stórum stíl ef rétt er staðið að málum.

Reisum hágæða-kálverksmiðju í Helguvík!

sa_vel_016.jpg


mbl.is Aðför ríkisins að íslenskri garðyrkju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband