Ætlar helmingur þjóðarinnar á þing?

Víst er atvinnuleysi grafalvarlegt mál en allt kvak síðustu vikna um framboð ólíklegustu fuglategunda til Alþingis ber vitni um einkennileg eggjahljóð.

Ekki er á bætandi það fuglabjarg, sem við Austuvöll stendur.

Nær væri að steypa undan öllu gerinu í eitt skifti fyrir öll...

sulubyggd.jpg


mbl.is Tryggvi Þór Herbertsson vill á þing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byrjum að selja aðgangseyri STRAX!

„Tóm-listarhúsið“ á núverandi byggingarstigi á að verða minnisvarði og safn um Hrunið og ekki leggja krónu meir í ferlíkið nema til að útbúa yfirbyggða safn- og veitingaaðstöðu á efstu hæð.

Notum þessa 13-14 milljarða, sem áætlaðir eru í bygginguna, í e-ð uppbyggilegra, einsog t.d. til að hjálpa þeim fjölskyldum, sem eru að missa sitt húsnæði.

Er kannski einhver að láta sig dreyma um að komast á tónleika með Rolling Stones árið 2016?

safn_796461.jpg

 

 


mbl.is Tónlistarhúsið fær grænt ljós
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ehf. dauðans...

Mörg einkahlutafélög hér á landi voru beinlínis stofnuð með það að markmiði að fara á endanum í þrot.

Frá árinu 1999 til 2005 vann ég í verslun og það var með ólíkindum, hvað menn voru duglegir að taka nótur með kennitölu fyrir öllum andskotanum og þá meina ég ÖLLU.

Þetta vita allir, því stór hluti þjóðarinnar tók og tekur enn þátt í þessu ehf.-rugli.

Íslendingar eru, einsog börnin segja, skattsvikarar dauðans...

 

BLEKKING ehf.


mbl.is 3.500 fyrirtæki stefna í þrot
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gvuð og eineltið...

Tilraunin í fyrra í Cern mistókst ekki, einsog almenningi var og er talin trú um.  Sá rándýri dýrðaljómi, sem sveipaður hefur verið þessu „mesta afreki vísindanna“ er bara blekking.

Kona nokkur, Doreen Ellen Bell-Dotan, er gyðingur og fædd í Bandaríkjunum, en hefur í rúm tuttugu ár búið í Ísrael.  Hún fjallar um Cern-tilraunina í myndbandinu, sem er í þremur hlutum, hér fyrir neðan.  Skoðanir hennar eru vægast sagt á skjön við flest, sem birtist okkur í „viðurkenndum“ fjölmiðlum.

Myndbönd hennar á YouTube undir heitinu SilverRedIndigo er oft mjög áhugaverð, ekki síst vegna mikillar þekkingar hennar á sögu og móðurmáli sínu, hebreskunni.  Þá eru myndböndin hennar mjög svo einföld og heimilsleg í framsetningu og yfirleitt má sjá fatnað ýmis konar og heimilisdót hangandi á vegg í bakgrunninum.  Svo er hún auðvitað sannur anarkisti :)

The Large Hadron Collider Worked. A Stable Black Hole Formed - á YouTube HÉR  

large-hadron-collider.png


mbl.is Hverjir verða fyrstir til að finna „guðseindina“?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hef ég drepið mann?

Með því að fordæma ekki stríðsrekstur Bandaríkjamanna og taglhnýtinga þeirra, NATO, í Afganistan, þá er íslensk þjóð að samþykkja þessi hryðjuverk.

Vera Íslands í NATO er smánarblettur á þjóðinni.  Við gætum sýnt heiminum gott fordæmi með því að segja okkur frá helstefnu hernaðarsinna, sýnt og meint í verki, að við tökum Lífið fram yfir Dauða.

Mæli sérstaklega með þessari vefsíðu antiwar.com

obama-revolution3-4001.jpg

 


mbl.is Hvetja NATO til að fjölga í Afganistan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju ekki afhausun og aflimun?

Ekkert persónulegt...

torso.jpg


mbl.is Þolir ekki sjálfselsku í rúminu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verum á varðbergi

gagnvart þessum öflum.

Samtök um vestræna samvinnu/Varðberg eru taglhnýtingar NATO á Íslandi.

Spurning, hvers konar „hagsmunagæsla“ er hér á ferðinni...

nato_warp-l.jpg


mbl.is Ræða um auðlindir og hagsmunagæslu á N-Atlantshafi og Norðurskautinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband