24.2.2009 | 20:27
ÆLOVJÚ...
Er Skaupið búið, mamma? Má ég fara út og sprengja?
Fjármagnsflutningar Kaupþings höfðu mikil áhrif á Bretana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.2.2009 | 17:35
Ain´t Misbehavin´...
Það er deginum ljósara, að allt þetta sjónarspil tengist væntanlegu drottningaviðtali Kastljóss í kvöld við Davíð nokkurn Oddsson.
Það viðtal mun fara í sögubækurnar, verði þær þá nokkurn tíma skrifaðar...
Taugaveikluð ríkisstjórn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.2.2009 | 17:01
Eitt sinn teygði ég mig eftir krónu.
Það var árið 2001, þá um haustið...
Engin viðskipti með krónur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.2.2009 | 16:30
Gufudallar & synir loftsins...
Ég og nokkrir vinir mínir höfum tekið á leigu japanskt hvalveiðiskip og er það væntanlegt til landsins í maí byrjun. Skipið er svo til nýtt, 25 ára gamalt og var skverað í hólf og gólf fyrir tveimur árum. Hugmyndir okkar gera ráð fyrir veiði á 100 - 125 langreyðum.
Þá höfum við gert samning við stærstu gæludýrafóðurskeðju heimsins, Pedigree, um sölu á 600 tonnum á gæludýrafóðri, ætlað á Bandaríkjamarkað, undir vörumerkinu Keiko´s Choise.
Samkv. okkar útreikningum munu veiðarnar og vinna í landi við skurð og niðursuðu skapa um 15 störf á ársgrundvelli næstu fjögur árin og það skal tekið fram, að þetta er ekki gert af hugsjón, heldur einsog sagt er uppá enskuna: We´re only in it for the money...
Hvalur 8 í slipp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.2.2009 | 12:16
Að rækta garðinn sinn (í eldhúsglugganum)...
Um miðja síðustu viku fann ég í einni af mínum fimm skúffum nokkra fræpoka, sem ég keypti í fyrra. Einn þessara poka innihélt spínatfræ og þar sem sól hækkar á lofti, þá ákvað ég að pota nokkrum niður í mold.
Og viti menn, fimm dögum seinna glittir í nokkra spínatkolla!
Þetta er bara kraftaverk, því seint verð ég talinn með græna fingur, en ég er örvhentur, sem kannski hjálpar :)
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.2.2009 | 10:31
Hvenær er nó(g) nó(g)?
Í fréttum Rúv. kl.9 var sagt frá áhyggjum breskra yfirvalda af mótmælum þar í landi á næstu vikum og mánuðum vegna vaxandi atvinnuleysis og erfiðleika í hnignandi efnahagslífi.
Í Bandaríkjunum eru yfirvöld einnig viðbúin vaxandi óróa og samkv. þessu HÉR, sem er vægast sagt í anda 1984 Orwells, þá má búast við miklum tíðindum...
70 fyrirtæki gjaldþrota í janúar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.2.2009 | 09:28
Nei, ekki Melabúðin!
Það er oft með ólíkindum, hvað þjófar geta verið smekklausir og gildir þá einu, hvort þeir ræna heilt þjóðfélag eða félagsmiðstöð einsog Melabúðina.
Það má líka segja, að SÁÁ taki oft við þessum mönnum á þeirra endastöð, þegar allt andlegt og veraldlegt góss er á þrotum...
Brotist inn í Melabúðina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Ferðalög | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)